Tafir hjá strætó á Akureyri

Færð er farin að spillast í úthverfum. Mynd:Ragnar Hólm
Færð er farin að spillast í úthverfum. Mynd:Ragnar Hólm
Afleitt veður er nú á Akureyri og færð mjög farin að þyngjast í úthverfunum. Vegna þessa hafa orðið töluverðar tafir á akstri flestra strætisvagna og útlitið er ekki gott. Stefán Baldursson, forstöðumaður Strætisvagna Akureyrar, segir að aukavagnar hafi verið ræstir út til að bæta stöðuna en það dugi ekki alltaf til. Miðað við veðurspá má búast við að akstri strætisvagna á Akureyri verði hætt þegar grunnskólum lýkur í dag.

Nýjast