Tafir hafa orðið á framkvæmdum við Naustaskóla

Skólastjóri Naustaskóla mætti á fundi skólanefndar Akureyrar í vikunni og gerði grein fyrir stöðu mála í skólanum, en framkvæmdir við skólann hafa dregist umfram það sem vitað var um. Fram kom að eldri deildin byrjaði skóla einum degi seinna en áætlað var.  

Fram kom hjá skólastjóra að nú er lokið að mestu við almennt kennslurými á báðum hæðum en verkgreinaaðstaða og kennslueldhús verða afhent til notkunar 11. september nk. Reiknað er með að framkvæmdum við skólalóðina verði lokið seinni partinn í september. Skólanefnd samþykkti að óska eftir fundi með Fasteignum Akureyrarbæjar til þess að ræða þann drátt sem orðið hefur á verklokum og hefur haft áhrif á skólbyrjun nemenda í Naustaskóla.

Nýjast