Á laugardaginn kjósum við íbúar Norðausturkjördæmis fulltrúa á Alþingi sem við treystum til þess að bera fram okkar óskir og standa vörð um hagsmuni okkar, hvort heldur þær lúta að staðbundnum viðfangsefnum eða varða landsmenn alla. Í mínum huga snúast kosningarnar um það hvort almenningur í landinu telji að þetta kjörtímabil hafi verið til blessunar fyrir fólk og fyrirtæki í landinu eða hvort nú sé tækifærið að kveðja stjórnarstefnu sl. fjögurra ára, sem hefur byggst á því að ríkisvaldið hefur stöðugt tekið meira til sín á kostnað almennings og atvinnulífsins. Síauknar álögur á fólk hafa gert það að verkum að úr færri krónum er að spila hjá fjölskyldum, sem aftur hefur haft þær afleiðingar að einkaneysla hefur dregist saman og hagkerfið er í lága drifinu. Ekki var á það bætandi til viðbótar við sögulegt frost í fjárfestingum.
Við sjálfstæðismenn bjóðum fram öflugan framboðslista með sterkar rætur í okkar kjördæmi. Sjálfur held ég heimili á Akureyri ásamt fjölskyldu minni og sæki þekkingu og styrk á heimaslóð. Ég hef lagt mig fram um að kynna mér vel allt kjördæmið allt frá Siglufirði til Djúpavogs og tel mig því þekkja vel mismunandi aðstæður fólks, vonir þess og væntingar, erfiðleika og tækifæri.
Fyrir þessar kosningar höfum við sjálfstæðismenn lagt fram raunhæfar tillögur sem miða að því að bæta hag heimila og fyrirtækja og er unnt að koma strax til framkvæmda. Við leggjum áherslu á lækkun tekjuskatts sem við teljum að sé mikilvægasta skrefið í að bæta hag heimila og atvinnulífs. Lækkun tekjuskatts skilar strax hærri ráðstöfunartekjum og léttir undir með rekstri heimilisins. Við viljum einnig lækka virðisaukaskatt og tolla, sem lækkar vöruverð svo um munar. Afar brýnt er að lækka tryggingagjald á fyrirtæki, enda verður að brjótast sem allra fyrst út úr óvissu og kyrrstöðu í atvinnulífinu og sækja fram á nýjan leik. Við þurfum að auka fólki og fyrirtækjum bjartsýni. Til þess þarf aðra stefnu og hana bjóðum við sjálfstæðismenn fram. Tækifærið til breytinga er laugardaginn 27. apríl.
Lesendum Vikudags og landsmönnum öllum óska ég gleðilegs og gjöfuls sumars.
Kristján Þór Júlíusson.
Höfundur skipar 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi.