Syngur á persónulegum nótum

Rúnar Eff. Mynd/Þröstur Ernir.
Rúnar Eff. Mynd/Þröstur Ernir.

Rúnar Freyr Rúnarsson sendir frá sér nýja plötu í apríl næstkomandi og er  það önnur plata hans á ferlinum. Rúnar hefur verið afkastamikill tónlistamaður og spilað um allt land undanfarin ár. Blaðamaður Vikudags settist niður með Rúnari yfir kaffibolla og spjallaði við hann um tónlistina, fjölskyldulífið og erfiðan skilnað sem hann gekk í gegnum nýlega.

„Platan er búinn að vera í vinnslu í um tvö og hálft ár. Ég stend sjálfur að útgáfunni og ferlið hefur því verið langt. Þetta er að mörgu leyti persónuleg plata. Textarnir byggjast flestir á minni lífsreynslu. Ég er mjög ánægður með afraksturinn og hef fengið góð viðbrögð. Svo er bara að sjá hverju þetta skilar mér. Hlutirnir geta gerst hratt í tónlistarheiminum þannig að maður veit sjaldan hvað morgundagurinn ber í skauti sér.“

Hvernig er að starfa sem tónlistarmaður Akureyri?

„Ég get ekki kvartað þar sem ég hef nóg að gera. En þetta getur verið flökkulíf þar sem ég er að þeytast hingað og þangað um landið. Ég er að spila nánast allar helgar, hvort sem það er á Akureyri eða annars staðar. Ég hef einnig verið að spila töluvert erlendis upp á síðkastið, t.d. í Danmörku og Svíþjóð. Svo stendur til að fara út til Bandaríkjanna í sumar þannig að það er talsvert um ferðalög. Heima fyrir er ég einnig að syngja mikið í brúðkaupum og jarðarförum.“

Erfitt en gefandi

„Það getur verið mjög erfitt að spila í jarðarförum. Sérstaklega þar sem ég er oft fenginn til þess að spila hjá ungu fólki og börnum sem fallið hafa frá í blóma lífsins. Þá reynir á að loka á tilfinningar og hugsa um eitthvað annað. En á sama tíma þarf að gefa allt í sönginn. Maður verður óneitanlega meyr þegar maður syngur í jarðarförum, slíkt er óhjákvæmilegt. Enda þótt söngur við þetta tilefni sé krefjandi og aldrei gaman þá er það gefandi. Maður verður ánægður með sjálfan sig og finnst maður hafa gefið eitthvað af sér. Fólk er líka yfirleitt mjög þakklátt. Í brúðkaupum er þetta alveg þveröfugt. Þá eru allir hressir og maður er þátttakandi í stórum stundum í lífi fólks, á degi sem er fullur af hamingju og gleði.“

Nánar er rætt við Rúnar í nýjustu prentútgáfu Vikudags.

throstur@vikudagur.is

Nýjast