Fyrrum sunddrottning Íslands, Ragnheiður Runólfsdóttir, hefur búið á Akureyri í rúmt ár. Hún flutti með fjölskylduna norður frá Akranesi í ágúst í fyrra og er aðalþjálfari Sundfélagsins Óðins. Vikudagur settist niður með Ragnheiði í Sundlaug Akureyrar þar sem hún hefur vinnuaðstöðu, en Ragnheiður var nýkomin upp úr lauginni þegar blaðamaður truflaði hana yfir kaffibolla.
Ég reyni að synda á hverjum degi. Mér líður alltaf best, bæði andlega og líkamlega, ef ég næ að synda. Ef það er t.d. mikið álag á mér í öðrum hlutum í lífinu finnst mér afskaplega nærandi að geta tekið sundsprett. Bara að synda tvo til þrjá kílómetra er nóg til að ég slaka alveg á.
Ein besta hreyfingin
Það hafa allir gott að því að fá sér sundsprett og þetta er hreyfing sem öll fjölskyldan getur stundað saman. Ég hef alltaf haft slagorðið, Sund fyrir lífið, að leiðarljósi því ég hef verið að kenna frá ungbarnasundi upp í sundleikfimi fyrir nírætt fólk. Vatnið hefur vissan lækningamátt og það er tiltölulega auðvelt að fá fólk til að hreyfa sig í vatni. Þó að þú getur varla gengið af einhverjum ástæðum að þá áttu oft auðvelt með að sprikla í vatni. Þetta er líka ódýr hreyfing miðað aðra líkamsrækt. Aðstæður í sundlaugum landsins eru einnig góðar fyrir alla og ég held að Akureyringar séu almennt duglegir við að fara í sund, það er allavega alltaf mikið af fólki hér í lauginni.
throstur@vikudagur.is
Nánar er rætt við Ragnheiði í prentútgáfu Vikudags.