Sveitafitness og traktorskeppni á Sæludegi

Sveitafitness verður m.a. í boði á Sæludeginum.
Sveitafitness verður m.a. í boði á Sæludeginum.

Á laugardaginn um verslunarmannahelgina verður haldinn Sæludagur í Hörgársveit þar sem öll sveitin mun iða af lífi og boðið verður upp á allskyns viðburði. Má þar nefna fjórhjólafjör, bátatugþraut, smalahundasýningu, sandkastalakeppni og traktoraspyrnu, svo fátt eitt sé nefnt. Hátíðin hefst með keppni í sveitafitness við Möðruvelli í Hörgárdal kl. 11:00 og lýkur með ekta gamaldags sveitaballi í félagsheimilinu Melum um kvöldið, er segir í fréttatilkynningu.

Nýjast