Félag málmiðnaðarmanna Akureyri afhenti núverið sveinsbréf í bifvélavirkjun og málmsuðu um síðustu helgi. Tíu fengu sveinsbréf í málmsuðu og sex bifvélavirkjar voru útskrifaðir.
Þörfin á góðum iðn- og tæknimenntuðum mönnum vex ár frá ári og atvinnulífið kallar eftir þeim, segir Jóhann Rúnar Sigurðsson formaður Félags málmiðnaðarmanna Akureyri.
Útskriftin á málmsuðumönnunum var samvinnuverkefni Verkmenntaskólans á Akureyri, Símeyjar og Iðunnar fræðsluseturs, félagið hefur beitt sér fyrir því að þessir aðilar starfi saman, aukin menntun og eftirspurn eftir iðn og tæknimenntuðum mönnum hlýtur að skila sér í betri lífsgæðum, segir Jóhann Rúnar.