Sveinn Torfi ráðinn framkvæmdastjóri ÍV

Sveinn Torfi Pálsson
Sveinn Torfi Pálsson

Sveinn Torfi Pálsson, forstöðumaður eignastýringar Íslenskra verðbréfa, hefur verið ráðinn tímabundið til að gegna starfi framkvæmdastjóra Íslenskra verðbréfa á Akureyri. Einar Ingimundarson, sem sagði upp störfum sem framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa í lok júní, lætur af störfum í dag.

 Sveinn Torfi hóf störf hjá Íslenskum verðbréfum í janúar 1993 og hefur verið forstöðumaður eignastýringar Íslenskra verðbréfa undanfarin þrjú ár.

Íslensk verðbréf eru sérhæft eignastýringarfyrirtæki sem þjónustar viðskiptavini um allt land. Félagið var stofnað árið 1987 og er því í hópi elstu starfandi fjármálafyrirtækja landsins. Höfuðstöðvarnar eru á Akureyri en félagið er jafnframt með skrifstofu í Reykjavík. Starfsmenn þess eru 17 talsins.

Nýjast