Súperstjörnu Föndurgrautur og Riveríuletta fyrir tvo

Elvar Guðmundsson sér um matarkrók vikunnar og kemur hér með girnilegar uppskriftir. „Einhverra hluta vegna hef ég klikkaðan áhuga á mat, veit ekki alveg af hverju, en það má endalaust ”experimenta” og föndra með allskyns hráefni. Í dag er ég í skapi fyrir eitthvað fljótlegt, hollt og litskrúðugt.”

 

Rivíeruletta fyrir 2

 

„Ég bjó í Nice á suðurströnd Frakklands í eitt ár og þar átti ég nágranna sem vann sem kokkur á snekkjum fína fólksins. Einn yfirvegaðasti og flottasti gæji sem ég þekki, hann á heiðurinn af Riveríulettunni.”

 

Hráefni:

2 matskeiðar steikingarolía (mæli með kókos eða sólblóma)

1 rauðlaukur, saxaður

1 paprika, söxuð (muna að fjarlægja fræin)

1 hvítlauksgeiri, saxaður

1 chilli, saxaður (fjarlægja fræin)

2 tómatar, saxaðir

4 egg, hrærð

3 vorlaukar, saxaðir

Ólífur, svartar eða grænar, skornar til helminga (mæli með ólífum frá De Rit)

½ tsk fennel fræ, söxuð

hnífsoddur turmeric (má sleppa)

Fáein kóríander lauf (má sleppa)

Svartur pipar og salt (ekki iðnaðarsalt og alls ekki borðsalt!)

 

Aðferð:

1.     Rauðlaukur, paprika, hvítlaukur og chilli hitað í olíu á miðlungshita í 5 mínútur. Tómötum hrært við og hitað í 3 mínútur til viðbótar.

2.     Egg hrærð við, ásamt fennel, turmeric, salti og svörtum pipar. Þetta mallar í eina mínútu áður en það er hrært aftur í örstutta stund eða þar til eggin eru komin í fast form.

3.     Vorlauk, kóríander og ólífur hrærðar saman við í lokin.

4.     Tilbúið. En ég mæli sterklega með grænum chilli, af því að tómatarnir eru rauðir. Og þess vegna mæli ég líka með papriku sem er hvorki rauð, né græn! Fagurfræðin skiptir máli og fjölbreyttir litir eru meðal þess sem gera rétti fallega.

 

 

Súperstjörnu Föndurgrautur

 

Hafragrautur á morgnanna, klikkuð vítamín og klikkað góður á bragðið! 

 

Hráefni og aðferð:

1.     Kryddið soðinn grautinn með Himalaya salti og kanil. Setjið svo hverskyns fræ sem ykkur dettur í hug, hörfræ, sólblómafræ, sesamfræ, bókhveiti og graskersfræ (Fræblanda frá Rapunzel! Fæst í Nettó). Þessu er svo öllu hrært saman.

2.     Stráið svo yfir grautinn Organic Fruit Muesli frá Crispy Food (fæst í Bónus og Hagkaup). Því næst er rúsínum bætt við. Svo stráum við annaðhvort kakó- eða carobdufti yfir. Því næst koma goji ber og hunangsfrjókorn (bee pollen).

3.     Og ef það snjóar úti er Súperstjörnu Föndurgrauturinn toppaður með smá kókósregni í takt við veðrið. Það er stemning að borða með bambusskeið og sé Udo’s olía til á heimilinu gerir hún grautinn alveg einstaklega ljúffengan...

 

„Svo sendi ég boltann á eina fallegustu frænku mína, Huldu Kareni Pétursdóttur, og skora á hana að koma með uppskriftir í næsta blað.”

 

Nýjast