Sumri fagnað á Minjasafninu á Akureyri

Fjölskyldustemning mun ríkja á sumardaginn fyrsta á Minjasafninu á Akureyri. Blásarasveit Tónlistaskólans á Akureyri blæs sumarið inn með lúðraþyt. Leikfélag Menntaskólans á Akureyri sýnir brot úr uppfærslu sinni á söngleiknum Þrek og tár eftir Ólaf Hauk Símonarson.  Furðuhluti, ekki þó fljúgandi, má sjá á safninu þennan dag. Þeir munu án efa valda miklum heilabrotum hjá ungum sem öldnum. Kynslóðirnar geta einnig nýtt tækifærið til ganga um ljósmyndasýninguna MANSTU – vetrarbærinn Akureyri um leið og þær fagna sumri þó snjókornin falli úti.  Börn og fullorðnir geta hoppað sér til hita á stéttinni með því að húlla, tvista, sippa og blása sápukúlur.

Það er sem sagt nóg um að vera og því upplagt fyrir mömmur og pabba, ömmur og afa, langömmur og langafa, frænkur og frændur að gera sér glaðan dag með börnunum á Minjasafninu á Akureyri.

Kakó og lummur í boði STOÐvina safnsins

Nýjast