Umsóknartímabil sumarstarfa hjá Akureyrarbæ er hafið. Margvísleg störf eru í boði, svo sem á sambýlum, í öldrunarþjónustu, íþróttamannvirkjum, skrifstofustörf o.fl.
Allir umsækjendur þurfa að sækja um rafrænt og er öllum umsækjendum svarað. Aðgengi að tölvu og aðstoð við innskráningu umsókna stendur til boða á Amtsbókasafninu og í þjónustuanddyri Ráðhússins.
Leiðbeiningar um hvernig sótt er um starf er að finna hér.