Sumardekkin bíða

Þótt sumarið sé formlega gengið í garð eru flestir bílaeigendur á Akureyri enn á vetrardekkjum. „Þeir allra óþolinmóðustu eru búnir að skipta yfir á sumardekkin en annars fer þetta hægt af stað í ár,“ segir Sveinn Bjarmann verkstjóri á Dekkjaverkstæði Hölds. „Við reiknum með að vertíðin hefjist af fullum krafti á næstu dögum.“

Í svipaðan streng tekur Elín Dögg Gunnarsdóttir hjá Dekkjahöllinni. „Fólk er aðeins byrjað að skipta en vorvertíðin verður seint á ferðinni í ár, enda ekki að undra eins og veðrið hefur verið.“

throstur@vikudagur.is

Nýjast