Ársrit Sögufélags Eyfirðinga er komið út og færir alls 12 greinar er varða ýmist fortíð eða nútíð.
Jón Hlöðver Áskelsson segir frá gleði sinni og sorgum í spjalli við Kristínu Aðalsteinsdóttur. Anita Elefsen og Daníel Pétur Daníelsson leiða okkur inn á Síldarminjasafnið á Siglufirði þar sem sjónum er beint að Tý SK 33.
Rannveig Karlsdóttir og Elísabet Ásgrímsdóttir fjalla um merkar konur, frumkvöðulinn Jóninnu Sigurðardóttur og listakonuna í Fjörunni, Elísabetu Geirmundsdóttur.
Þá er Covid og Akureyri í brennipunkti í grein Grétars Þórs Eyþórssonar. Og Þórsarinn Sigfús Ólafur Helgason segir frá jarðarför KA-mannsins, Gunnars Jakobssonar.
Er þá fátt eitt talið af því sem Súlur færa okkur að þessu sinni.
Nýir áskrifendur að Súlum eru boðnir velkomnir í síma 863-75299 – eða í netfangi jhs@bugardur.is.
Við langlínu-skiptiborðið. Frá vinstri, Borghild Hansen, Ingimunda Sigurðardóttir, Kolbrún Jóhannsdóttir og Jóhanna Elíasdóttir.
Jón Ingi Cæsarsson segir sögu póstsins á Akureyri.
Arnór Bliki Hallmundsson fjallar um Snorrahús, hið eldra. Og er óneitanlega forvitnilegt að fræðast meðal annars um tengingu Hafnarstrætis 88 (sem myndin sýnir) og Snorra Jónssonar byggingameistara
Frá þessu segir í tilkynningu frá Sögufélagi Eyjafjarðar