Þau verkefni sem hlutu vilyrði um styrk að þessu sinni eru:
Arctic Services: 3.000.000,- kr., forsvarsaðili: Slippurinn á Akureyri ehf, samstarfsaðilar: Norlandair ehf, Arctic Maintenance ehf, Eimskip Ísland ehf, Rafeyri ehf, Hafnarsamlag Norðurlands og Akureyrarbær, verkefnisstjóri: Elva Gunnlaugsdóttir. Markmið verkefnisins er að auka umsvif eyfirskra fyrirtækja hvað varðar þjónustu við Grænland.
Áætlunarflug frá Akureyri til Austurstrandar Grænlands (Constable Point): 1.800.000,- kr., forsvarsaðili: Norlandair ehf, samstarfsaðilar: Ferðaskrifstofan Nonni ehf og Tangent Expeditions Ltd., verkefnisstjóri: Arnar Friðriksson. Markmið verkefnisins er m.a. að tryggja reglulegar samgöngur milli austurstrandar Grænlands og Akureyrar.
Beint flug 2013: 600.000,- kr., forsvarsaðili: Ferðaskrifstofan Nonni ehf, samstarfsaðilar: Markaðsstofa Norðurlands, Adria Airways, Turisticna Agencija Oskar, Potovanja Pisanec, Potovanja Trud., verkefnisstjóri: Helena Dejek. Markmið verkefnisins er að kynna Akureyri sem áhugaverðan áfangastað í beinu flugi frá suðaustur Evrópu og hrinda tveimur flugum í framkvæmd snemma sumars 2013.
Einangrun og vinnsla Astaxanthin: 3.000.000,- kr., forsvarsaðili: Primex ehf, samstarfsaðilar: Matís, Háskólinn á Akureyri og Rammi hf, verkefnisstjóri: Einar Matthíasson. Markmið verkefnisins er að þróa þau skiljuferli sem þarf til einangra og vinna Astaxanthin sem fellur til í frárennslisvökvum við vinnslu í kítósanverksmiðju Primex.
Snarpur: 3.100.000,-kr., forsvarsaðili: Páll Tryggvason ehf, samstarfsaðilar: Stefna ehf, Aseba á Íslandi sf og Sjúkrahúsið á Akureyri, verkefnisstjóri: Orri Gautur Pálsson. Markmið verkefnisins er að ljúka ákveðnum áföngum í þróun hugbúnaðarins Snarps.
Tækifæri Íslands á Norðurslóðum: 2.000.000,-kr., forsvarsaðili: Norðurslóðagáttin ehf, samstarfsaðilar: RHA - Rannsóknar og þjónustumiðstöð Háskólans á Akureyri og Norlandair ehf., verkefnistjóri: Halldór Jóhannsson. Markmið verkefnisins er að taka saman, vinna úr og miðla upplýsingum sem varða samgöngur, mannvirki og auðlindanýtingu á Norðurslóðum.
Úrvinnsla úr fiskroði: 2.000.000,- kr. Forsvarsaðili: Erlent ehf, samstarfsaðilar: O. Jakobsson ehf og Northcoast Seafoods ltd, verkefnisstjóri: Þorsteinn Már Aðalsteinsson. Markmið verkefnisins lýtur m.a. að hönnun framleiðsluferla fyrir vörur úr fiskroði sem hugsaðar eru sem gæludýrafóður.
Vetrarparadís Norðurlands: 3.500.000,- kr., forsvarsaðili: Markaðsstofa Norðurlands, samstarfsaðilar: N4 framleiðsla, N4 sjónvarp, aðild að Markaðsstofunni eiga jafnframt 19 sveitarfélög á Norðurland, auk tengdra aðila á vegum þeirra og jafnframt um 130 einkafyrirtæki. Verkefnisstjóri: Arnheiður Jóhannsdóttir. Markmið verkefnisins er að nota nýja nálgun við að búa til kynningarefni/kvikmyndir fyrir ferðaþjónustu á Norðurlandi með áherslu á veturinn.