Styrkir vegna flutningsjöfnunar

Samkvæmt lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun, er heimilt að styðja við framleiðsluiðnað og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni með því að jafna flutningskostnað framleiðenda sem eru með framleiðslu og lögheimili fjarri innanlandsmarkaði eða útflutningshöfn og búa þ.a.l. við skerta samkeppnisstöðu vegna hærri flutningskostnaðar en framleiðendur staðsettir nær markaði.

Styrkurinn getur numið 10-20% af flutningskostnaði og verður fulltrúi Byggðastofnunar  með kynningarfund vegna umsókna um flutningsjöfnunarstyrki þriðjudaginn 19. mars kl 11:00 í fundarsal Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, Skipagötu 9 (3ja hæð) á Akureyri.

Á heimasíðu Byggðastofnunar www.byggdastofnun.is má finna upplýsingar um flutningsjöfnunarstyrki.

Umsóknarfrestur um styrki er til 31. mars n.k. en opnað verður fyrir umsóknir á allra næstu dögum.

Nánari upplýsingar veitir Anna Lea Gestsdóttir hjá Byggðastofnun í síma 455-5433/660-5544 (anna@byggdastofnun.is) og  Baldvin, hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar í síma 460-5701 (Baldvin@afe.is )

Nýjast