Stundaðu líkamsrækt fyrir sálina

Ásgeir Ólafsson skrifar:

Það er löngu sannað að þeim sem stunda líkamsrækt reglulega líður betur andlega og eru í betra jafnvægi en þeir sem gera það ekki. Þú eflist andlega og verður öruggari með sjálfan þig og um leið færari í mannlegum samskiptum. Þú einangrast síður og það eykur lífsþrótt þinn. Þú dregur andann og lifir lífinu í fleiri litum.

Hvers vegna stundar þá aðeins um þriðjungur fólks sem líkamlega burði hefur til þess líkamsrækt?

Líkamsrækt, hugtakið að rækta líkama sinn, er margslungin. Það er hægt að stunda alls kyns hreyfingu. Þú þarft ekki og ættir ekki að fara eftir því sem aðrir gera. Þú getur og átt að finna þínar eigin leiðir við að hreyfa þig.

Hvað þykir þér skemmtilegast og hvað þykir þér leiðinlegt?

Einbeittu þér að skemmtilegum hlutum og slepptu þessu leiðinlega. Góður vinur minn kenndi mér að halda upp á allt það sem þú mögulega getur haldið upp á. Sama hversu „lítið“ aðrir segja það vera. Andleg líkamrækt er annað hugtak. Það er sem dæmi að bjóða skemmtilegu fólki í heimsókn og eiga með þeim kvöldstund. Sami vinur minn eignaðist rándýra koníaksflösku að gjöf sem var orðin 30 ára gömul í skáp hans. Hann hafði beðið í öll þessi ár með að opna hana. Hann fann ekki rétta tilefnið. Sagan um flöskuna endaði þannig að hann opnaði hana á ómerkilegu þriðjudagskvöldi eitt sumarið, þegar faðir hans kom í heimsókn í spjall. Þeir kláruðu flöskuna og urðu glaðir.

Hann viðurkenndi síðar að hafa flækt málin með þessa flösku og gert hana of stóra í sínu lífi. Þetta var bara flaska af koníaki.

Algengast er, og miða ég þá út frá minni reynslu, að þeir sem ætla sér að stunda líkamrækt, mikla það fyrir sér og gera of mikið úr því líkt og vinur minn gerði með koníaksflöskuna. Þetta á ekki að vera svona flókið.

Inn í breytuna kemur þetta.

Allir ætla og telja sig þurfa að ná einhverjum mælanlegum árangri í stað þess að næra sálina eina með hreyfingunni. Kílóin þurfa að fjúka hratt og ummálið sömuleiðis.

Þannig gera þeir sig að mælanlegum „hlut“ í hápressu þjóðfélagi sem með megrunarkúrum og öfgum, hefur ákveðið hvernig mannskepnan skal líta út.

Hvað á sér svo stað innra með þér þegar þú nærð ekki þessu mælanlega sem samfélagið setur?

 Þú verður vonsvikinn og hreyfingin sem áður var svo skemmtileg fellur um sig sjálfa og þú átt það til að hætta öllu. Þú ert ómeðvitað farinn að stunda líkamsrækt fyrir alla aðra en sjálfan þig.

Ég skora hér með á þig að byrja, og þá í þeirri hreyfingu sem höfðar mest til þín og þér þykir skemmtileg.

Þetta hlýtur að snúast um eitthvað meira en það að vera í röngum hlutföllum samfélags sem löngu er búið að missa sjónar á því hvað er rétt.

Höfundur hefur skrifað bókina „Létta leiðin“.

Nýjast