Hljómsveitin Stuðkompaníið 80's hljómsveit Stuðkompaníið mun koma saman um verslunarmannahlegina Akureyri. Hljómsveitin mun reka endahnútinn á hátíðina "Ein með öllu" á sunnudagskvöldinu á íþóttavellinum í miðbænum. Því má með sanni segja að þeir piltar verði á heimavelli.
Stuðkompaníið sigraði músíktilraunir 1987 og starfaði í um tvö ár eftir það. Þeirra vinsælustu lög eru Tunglskinsdansinn, Þegar allt er orðið hljótt og svo jólalagið Jólastund sem löngu er orðið klassíkst á íslenskumheimilum. Búningar voru alltaf stór hluti af framkomu hljómsveitarinnar og nú er bara að sjá hvort meðlimir stuðkompanísins komist ennþá í gömlu jakkanna.