Sumarið er nýtt til ýmissa framkvæmda í bæjarlandinu og þessa dagana er til að mynda unnið að gerð tveggja strandblakvalla í keppnisstærð í Kjarnaskógi. Áætlað er að þeir verði tilbúnir til notkunar um næstu mánaðamót eða fyrir verslunarmannahelgi.
Einnig má nefna að nú er verið að ljúka við að gera nýjan þriggja km langan gönguslóða í Krossanesborgum og í framhaldinu verða merkingar á svæðinu bættar og komið upp upplýsingaskiltum um dýra- og plötulíf þar, segir á fréttasíðu bæjarins.