Strætó mun ganga frá Reykjavík til Akureyrar frá og með 2. september næstkomandi og verður það í fyrsta sinn sem strætisvagnar ganga þá leið. Frá þessu er greint á Vísir.is. Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó, útskýrir í samtali á Vísi að í raun séu það Samband sveitarfélaga á Vesturlandi, Norðvesturlandi og Eyþing fyrir norðan sem kosti þjónustuna og því sé það ekki beinlínis Strætó BS sem sjái um ferðirnar. Hins vegar fá sveitarfélögin að nota aðstöðu og merki strætó fyrir þjónustuna, með svipuðum hætti og tíðkast á Suðurlandi þar sem Strætó keyrir milli Reykjavíkur og Selfoss.
Leið 57 mun aka alla leið frá Mjódd í Reykjavík til Akureyrar tvisvar á dag. Farþegar geta vitanlega farið út á miðri leið. Fargjaldið fyrir alla leiðina verður 7.700 kr. og minnkar svo hlutfallslega eftir því hversu langt farþeginn kýs að fara.