Ég er fyrst og fremst þakklátur fyrir góðan stuðning við mig í forvalinu. Að vísu var ég sá eini sem sóttist eftir fyrsta sætinu, en stuðningurinn við mig er afgerandi, segir Sgteingrímur J. Sigfússon. Hann fékk 199 atkvæði í fyrsta sæti, en alls kaus 261. Á kjörskrá voru 722 og var kosningaþátttakan þv´i um 36 %.
Já, já, því miður var þátttakan ekki meiri, en ég bendi á að í prófkjörum og forvölum hjá öðrum flokkum hefur þátttakan almennt ekki verið mikil á undanförnum vikum.
Bjarkey Gunnarsdóttir varaþingmaður hafnaði í öðru sæti forvalsins og í því þriðja Edward H.Huijbens.
Bjarkey hefur verið virkur varaþingmaður og hún hefur auk þess tekið virkna þátt í starfsemi hreyfingarinnar á undanförnum árum. Bjarkey er öflugur stjórnmálamaður, þannig að ég fagna hennar góða árangri í forvalinu. Mér sýnist þetta vera sterkur listi og hlakka til að starfa með þessum góða hópi, segir Steingrímur J. Sigfússon.