Stelpur rokka

mynd tekin af akureyri.is
mynd tekin af akureyri.is

Rokkbúðirnar Stelpur rokka! standa nú yfir í fyrsta sinn á Akureyri. Rokkbúðirnar hófust á síðastliðinn mánudag og þeim lýkur á morgun, föstudag. Búðirnar eru í Rósenborg og Brekkuskóla og hefur dagskráin verið frá kl. 10 til 17 alla dagana.

Aldursbilið á þátttakendum er 12-16 ára og hefur verið boðið upp á hljóðfærakennslu, hljómsveitaæfingar, vinnusmiðjur um ýmis þemu tengdum konum og heimsóknir frá frægum íslenskum tónlistarkonum

Nýjast