Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs tilkynniti í morgun um þátttöku sína í forvali flokksins vegna komandi alþingiskosninga.
"Hugur minn stendur til þess að viðhalda í fyrsta lagi þeirri sterku stöðu sem Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur byggt upp, bæði í Norðausturkjördæmi sem og á landsvísu. Í öðru lagi að leggja í dóm kjósenda ótvíræðan árangur ríkisstjórnarinnar við uppbyggingu landsins eftir efnahagshrun nýfrjálshyggjunnar og svara fyrir verk hennar í kosningabaráttunni. Samhliða og nátengt er að leggja grunn að áframhaldandi samstarfi félagslega sinnaðs fólks við landsstjórnina á komandi kjörtímabili. En í þriðja lagi og ekki síst vil ég ásamt félögum mínum um allt land leggja fram krafta mína í þágu vinstri stefnu, umhverfisverndar, kvenfrelsis, friðarbaráttu og félagslegrar alþjóðahyggju, segir í tilkynningu frá Steingrími.