Steingrímur J. Sigfússon sigraði í forvali Vinstri grænna í Norðaussturkjördæmi. Hann var sá eini sem sóttist eftir fyrsta sæti framboðslistans. Steingrímur hlaut 199 atkvæði, en alls kaus 261. Á kjörskrá voru 722, þannig að kosningaþátttaka var 36 %.
Í öðru sæti hafnaði Bjarkey Gunnarsdóttir frá Ólafsfirði.
Í þriðja sæti hafnaði Edward H. Huijbens og þar á eftir koma Ingibjörg Þórðardóttir, Þorsteinn Bergsson og Sóley Stefánsdóttir.
Forvalið er leiðbeinandi, en kjörstjórn mun á næstu vikum stilla upp lista flokksins.
Flokkurinn er nú með þrjá þingmenn, Steingrím, Þuríði Bachman og Björn Val Gíslason. Þuríður Bachman ákvað að draga sig í hlé, en Björn Valur skipti um kjördæmi og bauð sig fram í forvali flokksins í Reykjavík.