Steingrímur J. í sauðburði

Steingrímur var á Gunnarsstöðum í vikunni/mynd Gréta B. Jóhannesdóttir
Steingrímur var á Gunnarsstöðum í vikunni/mynd Gréta B. Jóhannesdóttir

„Já, ég verð að komast aðeins í leifarnar af sauðburðinum, labba niður í æðarvarp, huga að skóglendinu, kíkka á túnin og huga að gamla bænum. Ég ætla sem sagt að skjótast austur í tvo eða þrjá daga og svo verður þingið væntanlega kallað saman til fundar fljótlega, því eitthvað ætla drengirnir að gera,“ segir Steingrímur J. Sigfússon í ítarlegu viðtali við Vikudag, sem birtist í prentútgáfu Vikudags í dag. Hann gerir meðal annars upp ráðherraárin og verk ríkisstjórnarinnar.

Þú gast ekki oft farið heim í ráðherratíðinni ?

„Það er hárrétt hjá þér. Ég náði þó að fara í göngurnar og gat kíkt á bæjarhátíðina Káta daga á Þórshöfn.  Fjölskyldan tók sér einu sinni sameiginlegt frí á þessum árum, það var í fyrra er við fórum til Frakklands og Ítalíu í hálfan mánuð. Þannig að þessi tími var ekki verið fjölskylduvænn, svo mikið er víst.“

Eins og fyrr segir er ítarlega rætt við Steingrím J. í prentútgáfu Vikudags, sem kemur út í dag.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast