Það bendir allt til þess að árið verði enn betra en í fyrra sem þó var metár í okkar rekstri, segir Gunnar M. Guðmundsson framkvæmdastjóri SBA Norðurleiðar, en þar á bæ búa menn sig í óðaönn fyrir annasamt sumar. Þetta er nú reyndar svolítið einkennileg byrjun á sumri, hluti bílaflotans er af öryggisástæðum enn á vetrardekkjum, segir hann. Mikið hefur verið að gera hjá fyrirtækinu það sem af er árs og hvert metið á fætur öðru slegið. Fyrirtækið sérhæfir sig í fólksflutningum og býður upp á fjölbreytta þjónustu.
Nánar er rætt við Guðmund í prentútgáfu Vikudags.