Alls höfðu 8.574 kosið á Akureyri klukkan 20:00, sem gerir 64 % kjörsókn. Á sama tíma í síðustu alþingiskosningum var kjörsóknin 65,8 %.
Kjörfundi er lokið í Hrísey og Grímsey. Í Hrísey kusu 87 en í Grímsey 31.
Utankjörfundaratkvæði á Akureyri eru hátt í 2000, og býst formaður kjörnefndar við að kjörsóknin verði um 80 % , en í síðustu alþingiskosningum var kjörsóknin um 75 af hundraði.
Byrjað er að telja atkvæði og er von á fyrstu tölum úr Norðausturkjördæmi á ellefta tímanum.