Karlmaður á fertugsaldri var dæmdur í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir að stela þremur beikon áleggsbréfum og 26 flöskum af vanillu-og kardimommudropum úr Samkaup/Strax á Akureyri í sumar. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Norðurlands eystra í vikunni. Verðmæti þýfsins er um 9.500 krónur. Ákærði viðurkenndi brotið skýlaust en hann á nokkurn sakarferil að baki vegna þjófnaðar og annarra brota.
throstur@vikudagur.is