Hundruð jarðskjálfta hafa mælst úti fyrir Siglufirði. Sá stærsti varð á öðrum tímanum í nótt, 5,2 að stærð. Nokkrir skjálftar hafa mælst yfir fjórum og tugir yfir þremur. Ekki er vitað af meiðslum fólks eða eignartjóni. Hús nötruðu víðast hvar fyrir norðan. Hægt er að fylgjast með skjálftunum á vedur.is