Stærsti samningur Slippsins til þessa

Anton Benjamínsson/mynd Karl Eskil
Anton Benjamínsson/mynd Karl Eskil

„Þetta er stærsti einstaki samningurinn í sögu fyrirtækisins,“ segir Anton Benjamínsson framkvæmdastjóri Slippsins á Akureyri, en fyrirtækið hefur gengið frá samningi um að smíða allan vinnslubúnað í tvo frystitogara sem verið er að smíða í Tyrklandi. Anton segir að hátt í tuttugu starfsmenn fyrirtækisins verði í þessum verkefnum í allan vetur, auk þess sem þjónustu þurfi að kaupa frá öðrum innlendum fyrirtækjum.

„Búnaðurinn sem við komum til með að smíða er dýr, þetta verkefni er líklega um 30% af ársveltu Slippsins, þannig að samningurinn er okkur mikils virði. Það er hörð samkeppni í þessari grein, útgerðir skipa eru gríðarlega kröfuharðar um allan búnað,  þannig að þessi samningur er mikil viðurkenning fyrir okkur.“

Nánar um þetta í prentútgáfu Vikudags

karleskil@vikudagur.is

Nýjast