Þetta er stærsti einstaki samningurinn í sögu fyrirtækisins, segir Anton Benjamínsson framkvæmdastjóri Slippsins á Akureyri, en fyrirtækið hefur gengið frá samningi um að smíða allan vinnslubúnað í tvo frystitogara sem verið er að smíða í Tyrklandi. Anton segir að hátt í tuttugu starfsmenn fyrirtækisins verði í þessum verkefnum í allan vetur, auk þess sem þjónustu þurfi að kaupa frá öðrum innlendum fyrirtækjum.
Búnaðurinn sem við komum til með að smíða er dýr, þetta verkefni er líklega um 30% af ársveltu Slippsins, þannig að samningurinn er okkur mikils virði. Það er hörð samkeppni í þessari grein, útgerðir skipa eru gríðarlega kröfuharðar um allan búnað, þannig að þessi samningur er mikil viðurkenning fyrir okkur.
Nánar um þetta í prentútgáfu Vikudags