Háskólahátíð — brautskráning kandídata frá Háskólanum á Akureyri fór fram í fjórum athöfnum í Hátíðarsal Háskólans á Akureyri 13. og 14. júní. Aldrei hafa fleiri kandídatar brautskráðst frá háskólanum en samtals brautskráðist 591 kandídat í grunn- og framhaldsnámi af tveimur fræðasviðum.
Föstudaginn 13. júní brautskráðust 162 kandídatar úr framhaldsnámi og laugardaginn 14. júní brautskráðust 429 kandídatar úr grunnnámi í þremur athöfnum. Í fyrstu athöfn laugardagsins voru brautskráðir kandídatar með bakkalárpróf af Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviði. Í annarri athöfn voru brautskráðir kandídatar með bakkalárpróf af Hug- og félagsvísindasviði og loks voru brautskráðir kandídatar með diplómu af báðum fræðasviðum í þriðju og síðustu athöfn laugardags.
Sumarsólin mætti til brautskráningarHA-ingar hafa verið heppnir með veður þegar Háskólahátíð er haldin og var það alls engin undantekning í ár og má með sanni segja að veðrið hafi leikið við kandídata og gesti. Skipulagning og framkvæmd Háskólahátíðar gekk vonum framar og erum við sérstaklega stolt af því að geta brautskráð kandídata í persónulegri og vandaðri athöfn innan veggja skólans. Þá gerir starfsfólk KHA það mögulegt að hægt sé að sýna frá Háskólahátíð í beinni útsendingu og þar er svo sannarlega vandað til verka.
Raddir kandídataHefð er fyrir því að kandídatar flytji ávarp fyrir hönd kandídata og fluttu kandídatar ávörp í öllum fjórum athöfnunum. Ávörpin voru persónuleg og áttu það sameiginlegt að tala til samnemenda og háskólans. Hér er gripið niður í vegferð Gissurar Karls Vilhjálmssonar, kandídats í sjávarútvegsfræði, sem ákvað að byrja í fjarnámi en skipti fljótt yfir í staðnám og tók vin sinn með norður á Akureyri. „Ég fann hvað andrúmsloftið í skólanum var sérstakt, hvað fólk var opið, samheldið og áhugasamt. Ég fann hvað kennararnir voru aðgengilegir og umhverfið styðjandi. Allt í einu var það ekki svo galin hugmynd að flytja norður. Það gerðum við – og við sjáum svo sannarlega ekki eftir því í dag.“
Í ár fluttu fjórir kandídatar ávarp:
Mikilvægi háskólans fyrir samfélagið var leiðarstefið í ræðu rektors og að Háskólinn á Akureyri hefði byggt upp þá kennslu, rannsóknarstarf og þekkingarsamfélag sem í dag leiddi til þess að um helgina brautskráðist 591 kandídat sem er stærsti brautskráningarhópur frá upphafi skólans. „Þessi stóri hópur endurspeglar stöðugan vöxt skólans og fleiri hafa sótt um nám fyrir næsta ár en nokkru sinni fyrr. Saman mynda svo kennarar, stúdentar og starfsfólk þekkingarsamfélag sem er mikilvægt fyrir Ísland allt. Er það lykillinn að frekari þróun háskólans að við höldum áfram að eflast og stækka og verðum vonandi annar stærsti háskóli Íslands í framtíðinni.”
Rektor talaði einnig beint til kandídatanna í ræðu sinni og ítrekaði mikilvægi þeirra fyrir skólann: „Kæru kandídatar, þið hafið svo sannarlega verið mikilvægur hluti af samfélagi okkar, hvar sem þið búið á landinu. Þið hafið ekki aðeins lært – heldur einnig tekið þátt í uppbyggingu námssamfélagsins. Stúdentar sitja í mikilvægum nefndum og ráðum og eiga meðal annars sæti á deildarfundum og í háskólaráði. Þannig er tryggt að þið hafið áhrif á skólann. Þeir stúdentar sem taka þetta verkefni að sér leggja á sig mikla vinnu samhliða námi með því að starfa í stúdentafélögum, sinna hagsmunagæslu og halda utan um fjölbreytt félagslíf. Störf þessara einstaklinga gera háskólann að ykkar háskóla.”
Bogi Ágústsson fjölmiðlamaður var heiðursgestur Háskólahátíðar 2025 og ávarpaði kandídata í grunnnámi á laugardeginum. Hann nýtti tækifærið til að miðla af reynslu sinni sem fjölmiðlamaður og ítrekaði mikilvægi notkunar gagnrýnnar hugsunar við lestur á upplýsingum.
„Eitt af því sem hefur gjörbreyst frá því ég byrjaði í fréttamennsku er netið sem hefur gjörbylt daglegu lífi, til hins betra og til verri vegar. Netið hefur gefið illa þenkjandi fólki og vitleysingum vettvang til að romsa upp úr sér alls kyns þvælu og samsæriskenningasmiðir geta komið brengluðum kenningum á framfæri á samfélagsmiðlum. Ég get sagt ykkur af langri reynslu að þegar sumir þykjast sjá samsæri sé ég klúður, klaufagang og slysni í 99 tilfellum af hundrað. Upplýsingaóreiða og falsfréttir tröllríða samfélagsmiðlum og því bið ég ykkur um að vera gagnrýnin á það sem þið sjáið og lesið. Það er reginmunur, eðlismunur, á því sem er birt nafnlaust á TikTok, Youtube og víðar og því sem ritstýrðir miðlar láta frá sér, miðlar sem taka ábyrgð á efni sínu.”
Bogi fór svo yfir í það að vissulega hefði margt breyst til batnaðar síðastliðna áratugi og beindi eftirfarandi orðum til salarins: „Gleymum því ekki hinu jákvæða, prísum okkur sæl að vera uppi á þessum tímum þó að ykkur geti fundist ýmislegt að í heiminum. Munum að við búum í einu ríkasta landi veraldar. Hér eru lífsskilyrði, lífskjör og réttindi sem stór hluti mannkyns nýtur ekki. Við búum við virkt lýðræði, mannréttindi, réttaröryggi, jafnrétti, öryggi og frið. Það er ekki sjálfgefið og við verðum að gæta lýðræðisins, taka þátt, kjósa og bjóða okkur fram ef hugur okkar stendur til þess.”
Hann endaði ræðuna á að vísa í bjartsýni sem kemur fram í verkum Hannesar Finnssonar biskups: „Látum þá bjartsýni verða okkur nútímafólki til fyrirmyndar. Það gildir ekki bara á Íslandi heldur um heim allan. Gangi ykkur allt í haginn og gerið heiminn betri.”
Viðurkenningar fyrir árangur og þátttöku
Anna Þyrí Halldórsdóttir og Sigurður Ragnarsson deildarforseti Viðskiptadeildar á mynd sem er til vinstri,
Halldór Tumi Ólason og Sigurður Kristinsson deildarforseti Félagsvísindadeildar á mynd sem er til hægri
Viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í grunnnámi hlutu eftirtalin:
Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið
Græn ritgerðarverðlaun frá Umhverfisráði HA
Hug- og félagsvísindasvið
Græn ritgerðarverðlaun frá Umhverfisráði HA
Aðrar viðurkenningar innan hug- og félagsvísindasviðs
Viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í framhaldsnámi hlutu eftirtaldir:
T.v. Lilja Margrét Óskarsdóttir ásamt rektor og Berglindi Ósk Guðmundsdóttur formanni Góðvina og t.h. Ragnheiður Rós Kristjánsdóttir, Bryndís Eva var ekki viðstödd
Í 21. skipti veittu Góðvinir Háskólans á Akureyri, félag brautskráðra stúdenta við HA og annarra velunnara háskólans, viðurkenningar til kandídata sem hafa sýnt góðan námsárangur og óeigingjarnt starf í þágu háskólans meðan á námi stóð. Þrjár hlutu heiðursverðlaun Góðvina að þessu sinni:
Óðinn Svan Óðinsson, fjölmiðlafræðingur frá HA og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, var kynnir á athöfnunum fjórum og náði að skapa skemmtilega stemmingu í salnum. Að athöfnum loknum var boðið til móttöku í Miðborg háskólans.
Líkt og síðustu ár stóðu Daníel Starrason og Sindri Swan vaktina á Háskólahátíð og tóku myndir. Þær eru nú aðgengilegar kandídötum þeim að kostnaðarlausu hér.
Bein útsending var frá athöfnunum fjórum á Facebook-síðu háskólans þar sem nálgast má upptökurnar. Þær verða einnig aðgengilegar á YouTube rás háskólans innan skamms.
STARFSFÓLK HÁSKÓLANS Á AKUREYRI ÓSKAR ÖLLUM KANDÍDÖTUM INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ BRAUTSKRÁNINGUNA OG VELFARNAÐAR Í LÍFI OG STARFI!