Staða VG gæti veikst á landsbyggðinni

„Ákvörðun Steingríms gæti bæði orðið til þess að veikja og styrkja framboð hreyfingarinnar í Norðausturkjördæmi. Með því að vera ekki lengur formaður, er hugsanlegt að Steingrímur geti leyft sér að vera meiri „kjördæmapólitíkus“ og beint málflutningi sínum frekar að málefnum sem snerta kjördæmið sérstaklega,“ segir Grétar Þór Eyþórsson prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri um þá ákvörðun Steingríms J. Sigfússonar að láta af formennsku Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs.

„Sem óbreyttur þingmaður og oddviti kjördæmisins hvílir ekki í sama mæli á honum sú þörf að tala til flokksmanna og stuðningsmanna VG um allt land. Þetta gæti styrkt framboðið í kjördæminu, en hinsvegar er það auðvitað ekki jafn sterkt tromp og áður að formaður flokksins bjóði fram í kjördæminu. Almennt gætu þessar breytingar í forystu VG orðið til að styrkja flokkinn á Suðvesturhorninu en veikja hann á landsbyggðinni,“ segir Gréta Þór.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast