Spyr um Vaðlaheiðargöng

Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur beint fyrirspurn til innanríkisráðherra um Vaðalheiðargöng. Hann vill fá skrifleg svör við átta spurningum:


    1.     Hver er staðan á fjármögnun Vaðlaheiðarganga samkvæmt samþykkt Alþingis í júní sl.?
    2.     Hvað hefur Vegagerðin lagt í mikinn kostnað vegna ganganna?
    3.     Hver er uppfærð kostnaðaráætlun dagsins í dag, þ.e. miðað við tilboð IAV/Marti og annarra?
    4.     Hversu mikið af greiðslum til IAV/Marti, sem er erlent fyrirtæki að mestu, verður í erlendri mynt?
    5.     Hversu margir starfsmenn munu starfa við gerð ganganna, erlendir og innlendir?
    6.     Hvaða öryggiskröfur eru gerðar varðandi Vaðlaheiðargöng í samanburði við Hvalfjarðargöng? Eru kröfurnar meiri en lágmarksöryggiskröfur samkvæmt tilskipun 2004/ 54/EB? Eru þetta Trans European Road Network göng?
    7.     Er kostnaður við öryggismál inni í kostnaðaráætlun Vaðlaheiðarganga, svo sem slökkvibúnaður, neyðarsímar, vídeó-eftirlit og fjarskipti?
    8.     Hefur rekstraráætlun ganganna og greiðslugeta verið skoðuð miðað við uppfærðan stofnkostnað?


Nýjast