Í dag er staðan sú að liðlega fjögurþúsund útlendingar hafa ákveðið að heimsækja Norðurland í vetur, meirihlutinn til að skoða norðurljósin. Í fyrra voru útlendingarnir samtals um sjöhundruð, þannig að við erum að tala um byltingu. Þessir gestir gista hérna í tvær til þrjár nætur og flestir koma frá Bandaríkjunum, sem er nýtt fyrir okkur, segir Ásbjörn Björgvinsson framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.
Helsta ástæðan fyrir þessari aukningu er að Icelandair opnaði hótel á Akureyri og þar á bæ er ekki setið og beðið eftir viðskiptavinum, þeir eru einfaldlega sóttir. Icelandair hótelið á Akureyri er fullbókað í nóvember og önnur hótel á svæðinu njóta líka góðs af þessari frábæru markaðssetningu. Fyrstu hóparnir eru þegar komnir, þannig að við erum að sjá fram á góðan vetur í þessari grein ferðaþjónustunnar. Það er líka mjög ánægjulegt að sjá að fjöldi erlendra ferðamanna dvelur væntanlega hérna fyrir norðan um jólin og áramótin. Þetta er eitt það ánægjulegasta sem gerst hefur í norðlenskri ferðaþjónustu í mörg ár, segir Ásbjörn Björgvinsson.
karleskil@vikudagur.is