Götur Akureyrar bera þess margar merki að margir kraftmiklir bílar eru í bænum um helgina. Hjólför eftir trillitækin eru áberandi, sem fer fyrir brjóstið á bæjarbúum. Sum fyrirtæki hafa gripið til þess ráðs að loka bílastæðum um helgina með öflugum hindrunum. Lögreglan á Akureyri segir þetta árvisst á Bíladögum að reykspólað sé á götum og bílastæðum bæjarins.
karleskil@vikudagur.is