Spil og fótbolti

Aron Geir Jónsson, sonur Jóns Stefáns, spilar Jumping Monkeys og skemmtir sér konunglega.
Aron Geir Jónsson, sonur Jóns Stefáns, spilar Jumping Monkeys og skemmtir sér konunglega.

Akureyringarnir Jón Stefán Jónsson og Birkir Hermann Björgvinsson eiga og reka saman netverslunina B&J Sport. Fyrirtækið er tveggja ára gamalt og hefur hingað til boðið upp á fótboltavörur. Nú fyrir jólin helltu þeir sér hins vegar út í sölu á borðspilum.

„Þetta er vissulega undarleg blanda en útskýringin á þessu er mjög einföld; þetta endurspeglar áhugasvið okkar beggja. Ég sérstaklega er mikið fyrir að sitja með vinum mínum og spila skemmtileg spil. Þaðan er þetta komið,“ segir Jón Stefán. Hann segir þá félaga vilja auka við þá spilaflóru sem er í boði. „Okkur langaði að bjóða upp á eitthvað annað en þessi hefðbundnu spil. Við eyddum rúmum mánuði í að afla okkur upplýsinga um gæðaspil sem höfða til mismunandi hópa og erum verulega sáttir við afraksturinn.“

Gæðavörur

Þeir Jón Stefán og Birkir segja söluna ganga vel.

„Við erum að selja ótrúlega mikið miðað við að við höfum nánast ekkert markaðssett okkur og erum báðir með fjölskyldur og í fullri vinnu fyrir utan þennan rekstur. Við seljum núna ýmsum fótboltafélögum bolta og aðrar vörur tengdri þjálfun knattspyrnufólks. Við höfum lært mikið á þessu sviði og teljum okkur vera komna með algjörar gæðavörur tengdar fótboltanum í dag. Nú stefnum við inn á spilamarkaðin og verður hann alltaf svona vetrargæluverkefnið okkar enda minna að gera í kringum fótboltann þá,“ sögðu þeir Birkir og Jón Stefán. Slóðin á heimasíðuna er www.icelandsport.net.

Nýjast