Sorglegt en fyndið í Hofi um helgina

Nýtt verk eftir Ragnar Bragason höfund og leikstjóra Vaktaseríanna og kvikmyndarinnar Málmhaus verður sýnt í Menningarhúsinu Hofi um helgina. Sýningin Óskasteinar hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda en aðeins verður ein sýning á Óskasteinum á Akureyri.

Ragnar Bragason leikstjóri og höfundur verksins er kannski fyrst og fremst þekktur fyrir vinnu sína í sjónvarpi og kvikmyndum en hann sló í gegn með Vaktaseríunum og svo núna síðast með kvikmyndinni Málmhaus sem hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda. Gullregn hlaut átta tilnefningar til Grímunnar 2013 og Ragnar hlaut Grímuna sem leikstjóri ársins. Sami hópur listrænna stjórnenda kemur að uppetningu Óskasteina.  Í leikarahópnum eru á meðal annars þau Kristín Þóra Haraldsdóttir og Hallgrímur Ólafsson, eða Stína og Halli, sem eru Akureyringum góðkunn en þau voru fastráðin við Leikfélag Akureyrar fyrir um fimm árum. Stína segir að sér finnist alltaf gott að koma til Akureyrar. „Það er alltaf svolítið eins og að koma heim að koma til Akureyrar enda steig ég mín fyrstu skref sem nýútskrifuð leikkona í atvinnuleikhúsi á Akureyri og ég kem í raun alltof sjaldan norður. Þess vegna er það frábært þegar að ég fæ að koma hingað í vinnunni“ segir Stína.

Óskasteinar fjallar um illa skipulagt rán í smábæ sem misheppnast hrapallega. Á flóttanum leita ræningjarnir skjóls í mannlausum leikskóla og bíða fjórða félagans sem er horfinn á bílnum. Hópurinn hefur tekið gísl á flóttanum, eldri konu sem varð vitni að ráninu. Fram eftir nóttu stytta þau sér stundir innan um barnaleikföng en þegar birta fer af degi fer örvæntingin og ósættið innan hópsins að ágerast og ókunna konan afhjúpar sín eigin leyndarmál.

Nýjast