Söngleikur frumsýndur í Sjallanum

Það verður örugglega stuð í Sjallanum
Það verður örugglega stuð í Sjallanum

Söngleikurinn heitir - Berness ? "já takk & franskar á milli" - Höfundar eru Pétur Guð og Jokka, leikstjóri er Ívar Helgason og tónlistarstjóri er Heimir Ingimarsson. Pétur segir gert góðlátlegt grín að Akureyringum á afmælisári. Tónlistin sé frá Akureyri, frá Ingimar Eydal til Hvanndalsbræðra.

 

Hvernig getur einn hluti Íslands verið svona sérstakur og jafnvel með eigið tungumál? Hvað eru Akureyringar alltaf að monta sig yfir veðrinu? Af hverju eru þeir svona montnir? Hvað er málið með þetta berness á allt? Af hverju eru franskar á milli? Var ekki pláss á disknum? En þetta rauðkál? Má setja svona mikið undir á eina pulsu...fyrirgefðu; pylsu? - Þessum spurningum verður svarað í söngleiknum.

Hljómsveitina skipa: Heimir Ingimarsson, Stefán Gunnarsson, Guðjón Hermannsson, Þorvaldur Ingvi Schiöth og Marína Ósk Þórólfsdóttir

Það er nýr leikhópur á Akureyri, Grímurnar sem stendur að sýningunni.  

Söngleikurinn verður frumsýndur á föstudagskvöld.

Nýjast