Sókn í stað kyrrstöðu

Kristján Þór Júlíusson skrifar:

 Nú þarf að bretta upp ermar, það er verk að vinna. Samfélagið er í vörn, í besta falli kyrrstöðu. Stjórnarstefnan undanfarin ár hefur gert það að verkum að dregið hefur úr þeim krafti og áræðni sem lengi hefur einkennt Íslendinga og knúið öðru fremur áfram hjól samfélagsins. Þessa sér því miður stað út um allt land og það er algjörlega lífsnauðsynlegt að komast upp úr þessu djúpa hjólfari. Við verðum að sækja fram á nýjan leik. Á yfirvegaðan og markvissan hátt. Með breyttri stefnu.

Viðvörunarbjöllunum er hringt ótt og títt.  Nýjustu hagtölur gefa til kynna að verulega hafi hægt á hjólum efnhagslífsins að undanförnu. Einkaneysla stóð nánast í stað á síðasta ársfjórðungi liðins árs, sem er skýrt merki um þá kyrrstöðu sem er í samfélaginu. Á sama tíma halda stjórnvöld áfram á braut skattahækkana. Við verðum að brjótast út úr þessum vítahring sem fyrst, en til þess þarf nýja pólitíska forystu. Alþingskosningarnar í apríl nk. eru tækifæri til þess að skipta um stefnu, að sækja fram í stað kyrrstöðu.

Norðausturkjördæmi er kjördæmi tækifæranna. Hér eru miklir möguleikar á öllum sviðum til vaxtar. Grunnatvinnuvegirnir hafa verið sterkir hér, en að þeim hefur verið sótt á síðustu misserum með sértækri skattheimtu ríkisvaldsins. Sem aftur hefur gert að verkum að fyrirtækin halda að sér höndum með nýjar fjárfestingar. Óhófleg skattheimta leiðir aldrei til annars en að draga vígtennurnar úr bæði fólki og fyrirtækjum og þegar upp er staðið verða krónurnar í ríkiskassann færri en ella. Allir tapa en enginn græðir. Þessa einföldu hagfræði virðist núsitjandi ríkisstjórn ekki skilja.

Sjávarútvegurinn, sem er gríðarlega mikilvægur byggðum í Norðausturkjördæmi, hefur orðið harkalega fyrir skattakrumlu ríkisvaldsins og það sama á við um ferðaþjónustuna sem, ef rétt er á málum, getur falið í sér mikil sóknarfæri í okkar kjördæmi. Og stjórnvöld hafa eins og allir vita keppst við að koma í veg fyrir nýtingu háhitaorkunnar í Suður-Þingeyjarsýslu og iðnaðaruppbyggingu á Bakka við Húsavík.

  • Ég vil stuðla að lækkun skatta og skattkerfið verði einfaldað.  Við stækkum skattstofnana með aukinni atvinnustarfsemi.
  • Ég tel brýnt að afnema verðtryggingu á neytendalánum og ná fram lækkun verðs á nauðsynjavörum með lækkun tolla og vörugjalda.
  • Ég mun áfram styðja orkunýtingu á háhitasvæðum í Suður-Þingeyjarsýslu og uppbyggingu orkufreks iðnaðar á Bakka.
  • Ég styð heilshugar rannsóknir vegna olíu- og gasvinnslu á Dreka- og svokölluðu Gammssvæði.
  • Bættar samgöngur í kjördæminu eru forsendur framfara. Ég vil í því sambandi nefna Vaðlaheiðargöng, Norðfjarðargöng, veg um Öxi og jarðgöng undir Fjarðarheiði. Og jafnframt er afar mikilvægt að nýta flugvellina á Akureyri og Egilsstöðum til millilandaflugs. Þessir flugvellir eru mikilvæg forsenda sóknar í ferðaþjónustu í kjördæminu.

Ég hef leitt Sjálfstæðisflokkinn í Norðausturkjördæmi frá 2007 og býð nú fram krafta mína til þess að leiða flokkinn áfram á næsta kjörtímabili.  Þess vegna leita ég eftir stuðningi fólks hér í kjördæminu í fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í prófkjöri flokksins nk. laugardag. Jafnframt vil ég hvetja alla sjálfstæðismenn til þess að nýta atkvæðisrétt sinn og fjölmenna á kjörstað. Það yrði öflugur upptaktur að kosningabaráttu flokksins í kjördæminu fyrir þingkosningarnar í vor.

Kristján Þór Júlíusson.

Höfundur er alþingismaður og býður sig fram í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi

 

Nýjast