Mál mitt stendur þannig að ég bíð eftir svari frá Innanríkisráðuneytinu um þeirra niðurstöðu á uppsögninni og hvort hún eigi við rök að styðjast. Kennarasamband Íslands er með málið í ferli og þá er verið að kanna hvort Akureyrarbær sé tilbúinn að semja um bætur vegna uppsagnarinnar eða hvort farið verði í mál, segir Snorri Óskarsson, kenndur við Betel, við fyrirspurn frá Vikudegi.
Snorra var sagt upp störfum sem kennari hjá Akureyrarbæ sl. vor, en uppsögnin kom í kjölfar umdeildra skrifa á bloggsíðu Snorra um samkynhneigð. Snorri segist sjálfur vilja málaferli, þar sem mér finnst um prófmál vera að ræða og gott fyrir alla kennara landsins að vita hvort það megi segja þeim upp vegna skoðana þeirra, segir hann.
throstur@vikudagur.is