Hálfrar aldar gamall furureitur í Þórðarstaðaskógi stórskemmdist í snjóflóði sem féll í kjölfar stórhríðarinnar fyrir síðustu helgi, 20. og 21. mars. Hvort hægt verður að nýta viðinn af brotnu trjánum kemur ekki í ljós fyrr en snjóa leysir. Þetta kemur fram á heimasíðu Skógrækta ríkisins
Ekki er vitað nákvæmlega hvernær snjóflóðið féll en Sigurður Skúlason, fráfarandi skógarvörður á Vöglum, man ekki eftir því að flóð hafi fallið á þessum stað áður. Beggja vegna við hafi hins vegar fallið spýjur. Þetta flóð kom úr gili ofan skógarins, fór niður milli hóla og breiddi úr sér þar fyrir neðan. Sigurður segir að víða í skóginum séu merki um snjóbrot enda snjóþungur vetur í Fnjóskadal og mikið fannfergi í skóginum núna.
Reiturinn sem skemmdist í umræddu snjóflóði var upphaflega kvæmatilraun með fjórum kvæmum af stafafuru, Bennet Lake, Canmore S., Upper Lake Creek og Carcross. Skógræktarfólki þykir skaði ef einhver þessara kvæma hafa alveg þurrkast út í flóðinu en Sigurður segir nokkra von fólgna í því að flóðið skyldi falla á norðanverðan reitinn. Þar er mest af Bennet Lake kvæminu sem til er annars staðar í ræktun. Hin kvæmin eru suðlægari kvæmi og sjaldgæfari hérlendis. Það er því meira tjón ef eitthvað af því hefur farið alveg forgörðum í flóðinu.