Tveir snjóbrettaþjálfarar hjá Skíðafélagi Akureyrar hafa verið reknir vegna ósiðlegs myndbands. Þjálfararnir eru báðir rúmlega tvítugir. Forsvarsmenn SKA vildu ekkert tjá sig þegar Vikudagur spurðist fyrir um málið. Myndbandið birtist á vinsælli heimasíðu sem fjallar sérstaklega um snjóbrettaiðkun og vakti strax hörð viðbrögð þegar það var sett í loftið. Þar má m.a. sjá mikla drykkju, nekt, menn að kasta af sér þvagi og uppköst.
Þeir sem Vikudagur hefur rætt við og þekkja til málsins segja marga unga brettaiðkendur vera miður sín vegna ósiðlegra atriða í myndbandinu.