Snæbjörn sigraði í matreiðslukeppni í París

Snæbjörn fagnar sigri í París í dag
Snæbjörn fagnar sigri í París í dag

Snæbjörn Kristjánsson frá Akureyri sigraði  í matreiðslukeppninni Mondial des Chefs sem fram fór í París í Frakklandi í dag.

Þar fór fram matreiðslukeppni milli matreiðslumanna sem starfa í opinberum eldhúsum, skólum, stofnunum og mötuneytum.

Keppendur þurftu að elda fyrir 10 manns, Lambahrygg í aðalrétt og eftirrétt þar sem möndlur áttu að vera í aðalhlutverki, samkvæmt upplýsingum frá freisting.is

Úrslitin voru:

1. sæti - Ísland, Snæbjörn Kristjánsson

2. sæti - Frakkland, Ghislain Moureaux

3. sæti - Indland, Shehrezad Kapadia

Nýjast