Við erum alsælir eftir afar gott sumar þar sem veðursældin var með eindæmum góð. Við nutum góðs af því og fólk gæddi sér á mat með dönsku ívafi, segir Hallgrímur Friðrik Sigurðarson veitingamaður og einn af eigendum 1862 Nordic Bistro á Akureyri. Veitingastaðurinn er staðsettur í Menningarhúsinu Hofi þar sem ferðamannastraumur er töluverður yfir sumartímann og ávallt mikið um uppákomur.
Fólkið sem kemur með skemmtiferðaskipunum er duglegt við að koma hingað við og fá sér að borða. En ánægjulegast hefur hins vegar verið að taka á móti þeim fjölmörgu íslensku ferðamönnum sem hafa komið til okkar. Þeim hefur farið fjölgandi og eru mjög forvitnir um húsið og hvernig þetta hefur gengið. Reykvíkingar eru líka svolítið í því að bera saman Hof og Hörpu.
Dönsk lína í matargerð
Staðurinn dregur nafn sitt af árinu sem Akureyri fékk kaupstaðaréttindi og þeim dönsku áhrifum sem einkenndu verslun og viðskipti á Akureyri árum áður. Það er því mikið úrval af dönsku réttum. Við erum alltaf að skríða eftir þessari dönsku línu og smurbrauðið eða smørrebrød er alltaf vinsælast. Það eru nokkrar tegundir í því sem eru algjör klassík og eiga sína fasta kúnna.
Lengra viðtal við Hallgrím má finna í nýjustu prentútgáfu Vikudags.
throstur@vikudagur.is