Slippurinn leysti vanda kirkjunnar

Klukkan í Akureyrarkirkju gengur á nýjan leik/mynd karl eskil
Klukkan í Akureyrarkirkju gengur á nýjan leik/mynd karl eskil

„Við höfðum samband við Slippinn og fyrirtækið hreinlega bauðst til að redda málinu án endurgjalds og við erum fyrirtækinu  auðvitað óskaplega þakklát,“ segir Rafn Sveinsson formaður sóknarnefndar Akureyrarkirkju. Gangverk kirkjuklukkunnar bilaði í vetur og sóknarnefndin stóð frammi fyrir mjög kostnaðarsamri viðgerð.

„Fjárhagsleg staða okkar þolir ekki slíka viðgerð, þannig að þessi gjöf Slippsins verður seint fullþökkuð, svo mikið er víst. Ljósakrossinn á kirkjunni var líka bilaður og starfsmenn Slippsins létu sig ekki muna um að gera við krossinn í leiðinni."

Anton Benjamínsson framkvæmdastjóri Slippsins segir að viðgerðin hafi tekið tvo eða þrjá daga. Verkefnið hafi verið óvenjulegt, en ánægjulegt.

Nánar um þetta í prentútgáfu Vikudags

Nýjast