Sláttur hafinn í Eyjafirði

Sláttur hófst í morgun á Teigi í Eyjafjarðarsveit. Þrátt yfir að sláttur sé hafinn er útlit fyrir að heyfengur verði slakur hjá mörgum bændum í sumar. Stjórnarmenn í Landssamtökum sauðfjárbænda ásamt Sigurði Eyþórssyni framkvæmdastjóra samtakanna fóru um síðustu helgi í ferð um Norður- og Austurland til að hitta bændur og kanna stöðu mála vegna þess mikla tjóns sem víða hefur orðið vegna kals í túnum og erfiðs tíðarfars.

 

Óvenjuleg hlýindi í júní gætu haft mikil áhrif til batnaðar.

Tún á sumum bæjum í Þingeyjarsýslum, Eyjafirði og Skagafirði eru gríðarlega illa farin af völdum kals. Dæmi eru um að öll tún séu ónýt á stöku bæjum.

 



Nýjast