Slapp naumlega

Eins og sjá má er grindverkið stórskemmt
Eins og sjá má er grindverkið stórskemmt

Harður árekstur varð á gatnamótum Norðurgötu og Eyrarvegar á Akureyri, með þeim afleiðingum að bíll kastaðist á grindverk og stórskemmdi. Ökumaður bifreiðar sem ók niður Eyrarveginn virti ekki stöðvunarskyldu, með fyrrgreindum afleiðingum. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd eru skemmdirnar verulegar.

Eigandi grindverksins var á pallinum skömmu áður og þakkar sínum sæla fyrir að hafa ekki verið þar þegar áreksturinn varð. Gatnamótin þykja varhugaverð og vilja íbúarnir að merkingar verði bættar.

Nýjast