Slæmt ferðaveður

Kort Vegagerðarinnar klukkan 20:22
Kort Vegagerðarinnar klukkan 20:22

Nú er slæmt ferðaveður víðast hvar á Norðausturlandi. Ófært er um Víkurskarð, Dalsmynni og á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og þungfært í Ljósavatnsskarði, Hófaskarði og á Sandvíkurheiði. Einnig er orðið  þungfært  milli Dalvíkur og Hjalteyrar en annars er víða þæfingsfærð í Eyjafirði og í nágrenni Mývatns. Lokað er um Ólafsfjarðarmúla vegna snjófljóðahættu, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni í kvöld.

Nýjast