Slæm aðstaða á Sjúkrahúsinu á Akureyri

Ástæða þess að mig langar að fá að birta hér nokkrar línur er sú ömurlega aðstaða sem er til staðar við blóðsýnatöku á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Nú hef ég þurft að sækja þangað síðustu ár og nokkuð reglulega  upp á síðkastið. Furðulegt þykir mér að bjóða bæði starfsfólki og þeim fjölda sem þangað þarf að leita upp á slíka óviðunandi aðstöðu.

Þarna eru þrír stólar sem notaðir eru til blóðtöku, en aðeins tveir af þeim eru notfhæfir. Engin sérstök aðstaða er þarna fyrir börn sem er miður, því oft reynist þeim blóðtakan erfið. Mjög þröngt er um starfsfólk og hreint með ólíkindum að slíkt líðist í dag. Þarna eru stundum sex manns inni í einu í kompu sem ekki er stærri en átta fermetrar.

Þarna starfa yndislegar konur sem allar eru af vilja gerðar og auðvelda manni annars lítt skemmtilega reynslu. Mér finnst hreint út sagt ömurlegt að svona sé komið sé fram við þessar konur. Ég efast um að aðstaðan í ræstingarkompunum sé verri en þarna.

Finnst mér það hrein skylda stjórnvalda að lagfæra þessa aðstöðu hið fyrsta og ef það reynist þeim ofviða, hvet ég félagasamtök til að taka höndum saman og hlaupa undir bagga, einu sinni sem oftar.

Virðingarfyllst,

Haraldur Bjarnason, Akureyri.

Nýjast