Skötuselur í mangó-rjómasósu

Þau Unnur Ingólfsdóttir og Svafar Gylfason í Grímsey sjá um matarkrók vikunnar að þessu sinni.

Skötuselur í mangó-rjómasósu

fyrir 4

 

800 g skötuselur

smjörklípa eða 2-4 msk. olía

salt og pipar eftir smekk

1/2 l rjómi

6 msk. Mangó chutney premium

 

Skerið skötusel í hæfilega stóra bita, þerrið og kryddið með salti og pipar. Bræðið smjör eða olíu á pönnu og léttsteikið bitana. Hrærið rjóma og Mangó chutney saman í skál og hellið yfir fiskinn. Látið malla í 4-5 mínútur.

 

Salat

1 poki klettasalat

20-30 vínber, skorin í tvennt

½ camembertostur, skorinn í bita

½ agúrka

10 kirsuberjatómatar, skornir í tvennt

Með fiskinum er gott að bera fram,

auk salatsins, hrísgrjón og gott brauð.

 

Eplaeftirréttur fyrir 4

5 græn eða gul epli

Kanilsykur (hafið hátt hlutfall af kanil

í blöndunni)

Hveiti 100 g

Haframjöl 100 g

Sykur 170 g

Smjörlíki 200 g

Suðusúkkulaði 150 g

 

Flysjið eplin og skerið í bita eða skífur. Brytjið suðusúkkulaðið.

Smyrjið eldfast fat og raðið bitunum eða skífunum í lög í fatið. Stráið kanilsykri og dreifið brytjuðu súkkulaði

yfir hvert lag. Hnoðið síðan saman deig úr mjúku smjörlíki, hveiti og sykri og leggið yfir eplin með fingrunum. Bakið í ofni við 180°C í u.þ.b. 35 mínútur, eða þar til skorpan er orðin gullin. Berið fram með góðu kaffi, þeyttum rjóma

eða ís. „Við skorum á Rannveigu Vilhjálmsdóttur og Bjarna Gylfason í Grímsey að koma með girnilegan rétt í næsta

blað.“

Nýjast